Riverside veitingastaður

Fjölbreyttur matseðill


Riverside Restaurant býður upp á fyrsta flokks máltíðir eldaðar úr fersku hráefni. Matseðillinn er með íslenskum og erlendum réttum ásamt vegan réttum. Veitingastaðurinn er rúmgóður og bjartur með stórkostlegu útsýni yfir Ölfusá og Ingólfsfjall.


Starfsfólk okkar leggur kapp á að skapa þægilegt andrúmsloft með persónulegri þjónustu og gestrisni og sjá til þess að málsverðurinn verði ánægjuleg upplifun.


Á barnum er hægt að gæða sér á drykkjum við arineld og njóta stundarinnar. Happy hour er alla daga frá 16:00 – 18:00.


Veitingastaðurinn er opinn alla daga frá kl 18:00 – 21:00

og til 22:00 föstudag og laugardag.

Morgunverðarhlaðborð opið alla morgna frá 7:00 – 10:00.



Matseðill

Menu

Menu

Menu

Share by: