Ráðstefnur

og viðburðir

Vel útbúnir fundarsalir í rólegu umhverfi

Hótel Selfoss býður upp á fundar- og veislusali fyrir allt að 450 manns í sæti. Aðstaðan er glæsileg með fyrsta flokks tækjabúnað og hljóðkerfi sem henta fundarhópum af öllum stærðum, ráðstefnum, árshátíðum, veislum og mannfögnuðum af öllum toga. 

Fundasalirnir eru staðsettir á annarri hæðinni, aðal salurinn er 300 fermetra og inniheldur stórt svið sem rúmar hljómsveit eða aðrar uppákomur ásamt dansgólfi. Þessi fjölbreytni býður upp á fyrirtaks aðstöðu ekki bara fyrir ráðstefnur heldur einnig fyrir brúðkaup og veislur þar sem tónlist og dans eru í fyrirrúmi.


Starfsfólk hótelsins leggur mikla áherslu á að veita framúrskarandi þjónustu og frábærar samsetningar af veitingum fyrir alla.


Einnig getum við aðstoðað að skipuleggja hvataferðir og afþreyingu fyrir hópa sem koma til okkar.



Share by: